WhenGone er vefsíða þar sem notendur fá sitt eigið lokaða svæði þar sem þeir geta tekið upp myndbönd, skrifað skilaboð og hlaðið upp skrám að eigin vali. Þau gögn sem notendur setja inn eru svo send á ákveðna, fyrirfram valda viðtakendur þegar, og AÐEINS ÞEGAR notandinn hefur fallið frá.
Mikilvægur eiginleiki kerfisins er sá að notandinn þarf ekki að láta neinn vita af fyrirætlunum sínum. Kerfið er tengt við þjóðskrá og falli notandi frá þá fær kerfið sjálfvirkt tilkynningu um það. Kerfið er algjörlega sjálfvirkt og fyllsta öryggis gætt í hvívetna.
Þjónustunni er ætlað að veita þeim sem búa við erfiðar aðstæður eða vilja vera öruggir að þessu leyti ákveðna hugarró. Við teljum þjónustuna henta öllum en virkni kerfisins er fyrst og fremst hugsuð út frá þörfum þeirra sem berjast við lífshættulega sjúkdóma, eru í líknandi meðferðum eða starfa á hættulegum vettvangi (t.d. friðargæslu, löggæslu eða við hernað).
Markmið okkar er að þessi þjónusta muni veita öllum Íslendingum (og síðar meir öllum jarðarbúum) m.a. tækifæri á að létta á sorgarferli ástvina sinna með því að deila í eigin persónu t.d. kveðjuorðum, ákveðinni þekkingu, sögum og gildum sínum með fjölskyldu og vinum eftir sinn dag.
Beta-Prófanir hefjast vor 2013..
Ef þú vilt taka þátt í betunni, skráðu póstfangið þitt hér fyrir neðan